Framsókn

Hagnaður Búfesta hsf. nam um 418 milljónum króna

Búfesti hsf rekur 234 íbúðir á Akureyri og Húsavík en starfssvæði félagsins er á norðausturlandi. Á dögunum hélt félagið aðalfund þar sem farið var yfir skýrslu stjórnar og gert grein fyrir rekstri og starfsemi félagsins, ásamt ársreikningi 2017.

Fram kom að verulegur bati er í afkomu félagsins þriðja árið í röð en hagnaður  ársins 2017 nam uþb. 418 milljónum og bókfært virði íbúða félagsins er samkvæmt reikningnum kr. 7.955 milljónir. Bókfært eigið fé félagsins var, samkvæmt ársreikningi, kr. 1.591 milljón. 

Eigið fé mun aukast um 1400 milljónir 
Nýbirt fasteignamat 2019 metur eignasafn Búfesti hsf á 8.736 milljónir og áhvílandi veðskuldir um þessar mundir eru ríflega 5.500 milljónir. Þannig mun eigið fé aukast mjög verulega (um 1400 milljónir)  og svigrúm félagsins er þannig til muna meira en það hefur verið um langan tíma.

Á fundinum kom fram veruleg pressa frá búsetum að staðið yrði betur að viðhaldi þannig að eignir félagsins héldu verðgildi sínu og gæðum. Samþykkt var að hækka innheimtu til reglubundins viðhalds um 10%. Framvegis verður innheimt 0,55% af brunabótamatsverði hverrar eignar árlega – og deilist það á 12 mánaðargjöld.

Að  sögn framkvæmdastjóra verður áfram unnið að því að leita betri lánakjara og leiðréttinga á breytilegum vöxtum Íbúðalánasjóðs. Alþingi samþykkti á vordögum breytingu á lögum sem auðveldar húsnæðissamvinnufélögum að leita beint til lífeyrissjóða og banka um skuldabréfafjármögnun og jafnframt að semja um stuðning og þróunarframlög frá samstarfsaðilum.

Verulegar byggingaframkvæmdir framundan á Akureyri
Búfesti undirbýr verulegar byggingaframkvæmdir á næstu 5-7 árum framundan.  Viljayfirlýsing með Akureyrarbæ um aðgengi að lóðum og samstarf við Félag Eldri Borgara á Akureyri gefur væntingar um að unnt verði ná árangri með raðsmíði og magninnkaupum á forsniðnum einingum eða fullframleiddum íbúðum.   Búfesti hsf hefur átt jákvæð samskipti við sveitarstjórnir á NA-landi og áhugasama aðila sem vilja leggja að mörkum til að skapa nýtt og hagkvæmt framboð íbúða þar sem skortur er á íbúðarhúsnæði víðast í landshlutanum.

Stjórn félagsins var öll endurkjörin á fundinum.

Benedikt Sigurðarson framkvæmdastjóri Búfestis, Guðlaug Kristinsdóttir formaður Búfestis og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri við undirskrift viljaryfirlýsingar um aðgengi að lóðum. Mynd/Ragnar Hólm

Sambíó

UMMÆLI