MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Hágæðavara úr íslenskum saltfiski

Eftir María Hjelm·
baldvin-hrefna-2
Mynd: Trolli.is· kaffid.is

Hjónin Baldvin Ingimarsson og Hrefna Katrín Svavarsdóttir á Siglufirði vinna að nýju þróunarverkefni í samstarfi við Matís, Íslenska saltfiskframleiðendur og Ajtel Iceland ehf. Þetta kemur fram á vef Trolli.is

Markmiðið er að þróa nýja íslenska hágæðavöru sem sameinar fyrsta flokks saltfisk, vandaða hönnun og ríka sögu íslenskrar saltfiskverkunar.

Verkefnið felst annars vegar í þróun gjafaöskju sem ætluð er ferðamönnum á Íslandi og hins vegar útgáfu sem miðuð verður að erlendum sérvörumörkuðum.

Með því er stefnt að því að skapa nýjan vöruflokk sem byggir á íslenskum hráefnum og hefðum en höfðar jafnframt til alþjóðlegra neytenda.

Verkefninu er stýrt af fyrirtækinu F-61, sem er í eigu Baldvins og Hrefnu. Þar er meðal annars byggt á reynslu fyrirtækisins af þróun gjafapakkningarinnar Síldarævintýrið, sem hefur náð góðri dreifingu víða um land og kynnt ferðamönnum sögu íslenskrar síldar á aðgengilegan hátt.

Nýja verkefnið ber heitið Bragð af arfleið og er jafnframt að hluta byggt á niðurstöðum norræna verkefnisins Saltfiskkræsingar. Nú er þó gengið skrefi lengra með því að færa uppskriftir og þekkingu yfir í staðlaða, iðnaðarhæfa framleiðslu á niðursoðinni afurð sem hentar til útflutnings.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026