Þær hafnarframkvæmdir sem standa nú yfir í nágrenni miðbæjarins á Akureyri munu gjörbreyta ásýnd bæjarins og setja nýjan svip á nágrenni miðbæjarins. Fjallað er um framkvæmdirnar í Morgunblaðinu í dag.
Gamla Torfunesbryggjan sem gekk út í Pollinn, beint fram af Kaupvangsstræti í Gilinu, hefur verið rifin. Ögn sunnar en hún stóð hefur verið hafist handa um jarðvegsframkvæmdir og uppfyllingu. Þar er einnig verið að slá niður stálþili fyrir viðlegukant sem verður um 150 metra langur.
„Þetta er mikil framkvæmd og verkefni sem var brýnt að hefjast handa um. Hafnsækin ferðaþjónusta hér á Akureyri hefur verið í miklum vexti síðustu árin sem krefst þess að aðstaða sem þarf sé sköpuð. Hægt verður að leggja hvalaskoðunar- og skemmtibáta að viðlegukantinum nýja og jafnvel allra minnstu skemmtiferðaskipum,“ segir Pétur Ólafsson, hafnarstjóri á Akureyri, í samtali við Morgunblaðið.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
UMMÆLI