Hafdís Íslandsmeistari í þríþraut
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Akureyringurinn Hafdís Sigurðardóttir varð Íslandsmeistari í ólympískri þríþraut eftir sigur í Reykjavíkurþrautinni sem haldin var á sunnudaginn.
Þetta var fyrsti Íslandsmeistaratitill Hafdísar í þríþraut en hún er margfaldur Íslandsmeistari í hjólreiðum. Hún kom í mark á 2 tímum og 12,59 sekúndum. Sara Árnadóttir varð önnur og Ásta Rún Ingvadóttir þriðja.
Sigurður Örn Ragnarsson stóð uppi sem sigurvegari í karlaflokki. Nánari umfjöllun um mótið má finna á vef RÚV með því að smella hér.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










