Hafdís er hjólreiðakona ársins

Hafdís Sigurðardóttir úr HFA var valin hjólreiðakona ársins á lokahófi Hjólreiðasambands Íslands um helgina.

Hafdís varð Íslandsmeistari í götuhjólreiðum á árinu og keppti fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu í götuhjólreiðum.

Lokahóf Hjólreiðasambandsins var haldið í Víkinni á laugardaginn. Allir bikarmeistarar ársins voru heiðraðir, viðurkenningar í aldursflokkum veittar og tilkynnt um val á hjólreiðafólki ársins. Frekari upplýsingar um verðlaunahafa má nálgast á vef Hjólreiðasambandsins með því að smella hér.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!