Lögreglan á Norðurlandi eystra segir í tilkynningu á Facebook síðu sinni að enn sé óvíst hvort tekist hafi að ná utan um þá hópa sem þeim tengjast og hefta útbreiðslu vegna Covid-19.
Smitum hefur fjölgað nokkuð í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra í vikunni en í gær voru 38 í einangrun og 99 í sóttkví. Uppfærðar tölur birtast á covid.is klukkan 11 í dag.
„Stök smit eru að greinast úti í samfélaginu þar sem óljóst er með tengingar við önnur smit. Lögreglan hefur þurft að hafa afskipti af smituðum einstaklingum og fólki sem á að vera í sóttkví. Farsóttarhús hefur verið opnað á ný á Akureyri,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.
Aðgerðastjórn vill beina því til íbúa umdæmisins að gæta að eigin sóttvörnum. Þvo og spritta hendur, halda 2 metra fjarlægð við ótengda aðila og takmarka samneyti við fólk eins og kostur er.