MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

HA og Drift EA undirrita samstarfssamning við Fab Lab Akureyri

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
unak-frett-samstarf-vid-fab-lab-04.09.2026
Ljósmynd: HA – Benedikt Barðason og Svava Björk Ólafsdóttir við undirritun· kaffid.is

Föstudaginn 4. september voru undirritaðir samstarfssamningar milli Háskólans á Akureyri og Drift EA við Fab Lab Akureyri. Samstarfið er liður í sameiginlegri sýn að því að styrkja tengsl háskólasamfélagsins við atvinnulíf og nýsköpunarstarf á svæðinu. Í tilkynningu frá HA segir að: „með aukinni samvinnu skapast tækifæri fyrir nemendur, starfsfólk og frumkvöðla til að þróa hugmyndir, byggja upp verkefni og skapa verðmæti í samfélaginu.“

Hluti af samstarfinu felur í sér að Svava Björk Ólafsdóttir, nýsköpunarstjóri Háskólans á Akureyri, tekur sæti í stjórn Fabeyjar, hollvinasamtaka Fab Lab Akureyrar.

„Það er afar ánægjulegt að efla samstarf við Fab Lab á þessum vettvangi. Nýsköpun verður sterkust þegar ólíkir aðilar vinna saman og deila þekkingu, reynslu og tengslaneti. Við hlökkum til að leggja okkar af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og nýsköpunarsamfélagsins í heild,“ segir Svava Björk Ólafsdóttir,“ segir Svava Björk Ólafsdóttir á vef HA.

Fab Lab Akureyri er hluti af alþjóðlegu neti Fab Lab-smiðja og veitir aðgang að tækjum og aðstöðu fyrir stafræna framleiðslu, frumgerðasmíði og skapandi þróunarvinnu. Markmið starfseminnar er að styðja einstaklinga, fyrirtæki og skóla við að þróa hugmyndir sínar og umbreyta þeim í raunveruleg verkefni.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026