Gyrðir Hrafn í Þór
Eftir María Hjelm·

Knattspyrnudeild Þórs hefur samið við Gyrði Hrafn Guðbrandsson um að leika með liðinu út keppnistímabilið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þór. Þar segir:
„Gyrðir er 27 ára gamall varnarmaður og kemur til Þórs á láni frá KR, uppeldisfélagi sínu en þar hefur hann leikið undanfarin tvö ár. Þar á undan lék Gyrðir með FH og Leikni og hefur hann leikið alls 90 leiki í efstu deild á sínum ferli og skorað í þeim átta mörk. Við bjóðum Gyrði velkominn í Þorpið og hlökkum til að fylgjast með honum í baráttunni með strákunum okkar!“
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










