Guðni Bergsson var í dag kjörinn formaður KSÍ en fór kjörið fram á 71. ársþingi KSÍ sem fram fór í Vestmannaeyjum.
Hann hlaut 83 atkvæði en mótframbjóðandi hans, Björn Einarsson, fékk 66 atkvæði.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Guðni verður níundi formaður KSÍ en hann tekur við embættinu af Geir Þorsteinssyni sem lét af embætti eftir 10 ára sem formaður.










