Guðmundur Hólmar á leið til Austurríkis

via Getty Images

Handboltakappinn Guðmundur Hólmar Helgason mun yfirgefa Cesson Rennes í Frakklandi og ganga í raði West Wien í Austurríki fyrir næsta tímabil. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í morgun.

Guðmundur Hólmar sem hefur leikið með Cesseon Rennes frá árinu 2016 verður ekki eini Íslendingurinn sem leikur þar en með liðinu leika þeir Viggó Kristjánsson og Ólafur Bjarki Ragnarsson. Þjálfari liðsins er Hannes Jón Jónsson.

„Ég er mjög ánægður með að hafa krækt í Guðmund Hólm­ar. Hann er að mínu mati maður­inn sem mig hef­ur vantað til þess að stýra varn­ar­leik okk­ar en eins er hann öfl­ug­ur sókn­ar­maður,“ sagði Hann­es Jón í sam­tali við Morg­un­blaðið í gær.

Akureyringurinn Guðmundur Hólmar gekk í raðir Cesson Rennes sumarið 2016 og samdi þá við liðið til tveggja ára. Hann hefur glímt við meiðsli á tímabilinu en hann var meðal annars hluti af íslenska landsliðinu sem fór á EM 2016.

Akureyringurinn Geir Guðmundsson, frændi Guðmundar Hólmars, leikur með Cesson Rennes en þeir frændur hafa leikið saman fyrir Akureyri, Val og Cesson. Geir skrifaði undir nýjan tveggja ára samning hjá Cesson fyrr á þessu ári og því munu leiðir þeirra skilja í haust.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó