Handknattleiksmaðurinn öflugi, Guðmundur Hólmar Helgason, meiddist illa á æfingu með franska úrvalsdeildarliðinu Cesson-Rennes í gær. Greint er frá þessu á vef Morgunblaðsins í dag.
Guðmundur segir í samtali við Andra Yrkil Valsson, blaðamann Morgunblaðsins, að hann hafi verið gráti næst eftir að hafa misstigið sig illa. ,,Ég þurfti að hafa mig allan við til að halda aftur af tárunum. Ég er aðeins skárri í dag, en vel lyfjaður líka,“ segir Guðmundur við mbl.is.
Eftir að hafa verið sendur beint í röngtenmyndatöku kom í ljós að Guðmundur er ekki brotinn en líklegt er að liðbönd í ökkla séu sködduð eða slitin. Það kemur betur í ljós eftir helgi en ljóst að Guðmundur mun missa af næstu leikjum Cesson-Rennes.
Guðmundur hefur leikið stórt hlutverk í liði Cesson-Rennes á sínu fyrsta tímabili hjá liðinu sem situr í 12.sæti frönsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir.
Sjá einnig
UMMÆLI