Grunur um myglu setur skólastarf í Hlíðarskóla úr skorðum

Önnur af tveimur skólabyggingum Hlíðarskóla á Akureyri er ónothæf um þessar mundir vegna gruns um myglu. Húsið er innsiglað og hvorki nemendur né starfsfólk fær að fara inn. Fjallað var um málið í kvöldfréttum RÚV í gær.
Foreldrum var greint frá því á skólasetningu í gær að byggingin yrði ekki í notkun í upphafi skólaársins. Kennarar geta ekki sótt gögn sín og ljóst er að þetta hefur töluverð áhrif á skólastarfið.
Í umfjöllun RÚV segir að grunur hafi komið upp um myglu í húsinu fyrir nokkru síðan. Fasteignir Akureyrarbæjar hafi ekki fundið neitt í úttekt en síðastliðinn miðvikudag hafi lögn sprungið í eldhúsinu og mygla komið í ljós á bakvið innréttingu.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar, vill bregðast hratt við.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










