NTC

Grunnskólanemar á skólabekk í VMA

Grunnskólanemar á skólabekk í VMA

Núna á vorönn 2024 gefst nemendum úr 9. og 10. bekk grunnskóla á Akureyri kostur á því að sækja kennslustundir á fjórum námsbrautum í VMA – hársnyrtiiðn, matvælabraut, listnáms- og hönnunarbraut og rafiðnbraut. Þetta kemur fram á vef VMA.

Um er að ræða valgreinar sem grunnskólanemarnir hafa valið til hliðar við sitt daglega nám í sínum grunnskólum.Þetta samstarf grunnskólanna á Akureyri og VMA hefur verið á undanförnum árum þegar unnt hefur verið að koma því við en ekki var hægt að bjóða upp á þessi námskeið þegar kóvid faraldurinn stóð sem hæst.

Þessi vika er sú fjórða sem grunnskólanemarnir mæta til kennslu í VMA, hver námshópur mætir einu sinni í viku. Kennt verður fram í maí, þar til kennslu lýkur í VMA. Í það heila eru um 80 grunnskólanemar sem nýta þessa valmöguleika í námi sínu.

Hér á vef VMA eru nokkrar myndir af grunnskólanemum í kennslustundum í skólanum í liðinni viku.

Sambíó

UMMÆLI