Pálína S. Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Grófarinnar Geðræktar, Heiðar Friðjónsson formaður framkvæmdaráðs StLO, Pétur Þór Jónasson formaður Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.

Grófin fær hjálp frá Oddellow og flytur starfsemina

Grófin geðrækt mun flytja starfsemi sína frá Glerárgötu 24 í húsnæði sem Styrktar og líknasjóður Oddfellow festi kaup á í þeim tilgangi að skapa félagasamtökum eins og Grófinni betri rekstrargrundvöll. Grófin hefur verið í vandræðum með húsnæði undanfarin ár, fyrst vegna heilsuspillandi aðstæðna og svo vegna hás leigukostnaðar.

„Oddfellow á Akureyri fékk spurnir af stöðunni og komu Grófinni til hjálpar. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir framtíð Grófarinnar að fá öruggt húsaskjól á hagstæðum kjörum. Það gerir okkur kleift að nýta þá styrki sem Grófin fær í starfið sjálft, fyrir fólkið sem þangað leitar. Að geta hugsað til framtíðar hvað þróun starfsins varðar út frá húsnæðinu og haft frelsi til að gera það svolítið að sínu er líka góð tilfinning. Ekki síður er það draumi líkast að fá húsnæðið svona mikið endurnýjað. Því hefur verið breytt og það bætt eins og best verður á kosið, eftir óskum Grófarfélaga svo það henti starfseminni sem best. Nýja Grófin mun án efa halda vel utan um fólkið sem kemur þangað,“ segir í tilkynningu Grófarinnar.

Pálína, framkvæmdarstjóri Grófarinnar, fór á dögunum og skrifaði undir leigusamninginn fyrir Glerárgötu 24.

„Við erum Oddfellow mjög þakklát fyrir þetta framtak sitt að festa kaup á aðstöðu fyrir félagasamtök á borð við okkur og Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis. Oddfellowsystkini hafa unnið hörðum höndum að því að endurnýja rýmið og taka það í gegn og lítur það ótrúlega vel út. Flutningar eru í fullum gangi, en eftir páska munum við opna á nýjum stað þó engin dagskrá fari af stað fyrr en við erum búin að koma okkur fyrir, en það verður auglýst sérstaklega.“

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!