MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Grasrótin haldin þriðja árið í röð

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
668206563_2879479292410429_1055076420978054277_n
kaffid.is

Tónlistarhátíðin Grasrót verður haldin i þriðja skiptið Í Hlöðunni hjá Litla Garði dagana 29.-30. maí. Þetta er tveggja daga hátíð sem einblínir á sjálfstæða tónlist í bænum. Forsprakkar hátíðarinnar eru þeir Ari Orrason, Daniel Alpi, Davíð Máni og Zophonias Tumi Guðmundsson. Fram kemur úrval af því besta sem akureyrska grasrótin hefur upp á að bjóða ásamt góðum gestum. Sérstakir gestir verða SÓT sem unnu nýlega þungarokks keppni Wacken á Íslandi og spiluðu sína fyrstu tónleika á Grasrót 2024 og þungarokkssveitin Devine Defilement að sunnan.

„Miðasala hefur aldrei gengið jafn vel og núna fyrir viðburðinn í gegnum netið og stefnir í að við toppum okkur aftur með lænöppinu og allt,“ segir í tilkynningu frá hátíðinni.

Fullt line-up er: Chögma, Davíð Máni, Devine Defilement, Hugarró, Kölski, Melodí, Show Guilt, Skag, Sólför, SÓT, Unknown Fantasy, Þorsteinn Kári,

Miðasala fer fram gegnum skilaboð á Instagramsíðu hljómbaðs eða gegnum tölvupóst ariorrasoninfo@gmail.com. Viðburðurinn er styrktur af Menningarsjóði Akureyrar og er hljóðbúnaður frá HS Kerfi. Einnig verða miðar seldir á viðburðinum við hurð.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026