Grasrótarsviðslistahátíðin Krummafótur haldin í fyrsta sinn

Grasrótarsviðslistahátíðin Krummafótur verður haldin í fyrsta sinn á Akureyri dagana 10.-12. júlí.
Markmið hátíðarinnar er að skapa vettvang fyrir ný sviðslistaverk, verk í vinnslu og sjálfstæða listsköpun, auk þess að efla tengsl sviðslistafólks á Norðurlandi og annars staðar af landinu. Hátíðin leggur sérstaka áherslu á að gefa ungu og upprennandi sviðslistafólki tækifæri og vettvang til að sýna verk sín.
Samkvæmt forsprökkum hátíðarinnar vantar sviðslistargrasrót á Akureyri og það er markmið hátíðarinnar að kveikja í henni. Sýnd verða verk í Deiglunni, Hlöðunni, heimahúsum og á förnum vegi. Skipuleggjendur hátíðarinnar eru sviðslistahópurinn Eimyrja.
Dagskrá Krummafótar má sjá hér fyrir neðan:
Föstudagurinn 10. júlí:
20:00 Opnunarveisla.
21:00 Samúðarkveðjur eftir Örnu Tryggva, Hamarstíg 6.
Laugardagurinn 11. júlí:
20:00 A horse with no game eftir Ane Stautland, Deiglunni.
21:00 Systkinasértrúaðarsöfnuður eftir Ágústu Kort, Deiglunni.
22:00 Smjör v smjörvi eftir Þorbjörgu Þóroddsdóttur, Deiglunni.
Sunnudagurinn 12. júlí
Á meðan birgðir endast: Frítt pylsupartí með frírri kokteilsósu í Hlöðunni.
17:00 Leikhús-töfrar eftir Odd Klöts og Iðunni Gígju, Hlöðunni.
18:00 Grenið eftir Ágústu Kort, Hlöðunni.
19:00 Hlé eftir Önnu Maríu Antonsdóttur, Hlöðunni.
20:00 Svanasöngur eftir Anton Tsjékoff, í leikstjórn Jennýar Láru Arnórsdóttur, flutt af Benóný Arnórssyni og Arnóri Benónýssyni, Hlöðunni.
Alla helgina mun félagsvísindarannsóknarteymið Gay Lover vera að gera rannsókn á karlmennsku á Akureyri.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










