Grænafl tekur stórt skref í rafvæðingu íslenskra strandveiðibáta

Oddverji SI76 verður fyrstur íslenskra strandveiðibáta til að rafvæðast.
Um 20 manna sendinefnd frá Íslandi og S-Kóreu var samankomin á Siglufirði í gær þar sem næstu skref voru tekin í verkefni Grænafls við rafvæðingu íslenskra strandveiðibáta. Þar var rætt um rafvæðingu minni fiskiskipa, farið yfir tæknilegar útfærslur og lokahönd lögð á samstarfssamninga sem verða undirritaðir í Grósku í Reykjavík á morgun, miðvikudag.
Með samningnum færist verkefnið yfir á framkvæmdastig og vinna við fyrsta bátinn, Oddverja SI76, hefst í kjölfarið en olíuvél hans verður fjarlægð og í staðinn settur s-kóreskur búnaður sem gerir bátnum kleift að ganga á rafmagni. Reynslan af verkefninu getur síðan nýst við frekari rafvæðingu íslenska strandveiðiflotans.
„Með þessum samningum má segja að rafvæðing íslenska strandveiðiflotans hefjist og það með aðstoð og fjármagni frá S-Kóreu,“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé, framkvæmdastjóri Grænafls.
Auk Grænafls taka íslensku fyrirtækin HS Orka, Rafal og Slippurinn Akureyri þátt í verkefninu.
Grænafl fékk inngöngu í Drift EA eftir fyrstu Slipptökuna og er í dag hluti af Hlunninum, frumkvöðlaprógrammi Driftar fyrir fyrirtæki sem eru komin af hugmyndastigi og vilja taka næstu skref í uppbyggingu og vexti. Hjá Drift hefur Grænafl fengið fjárfestingu, aðgang að ráðgjöf, tengslaneti, sérfræðingum og fjárfestingartækifærum sem styðja fyrirtækið við að þróa lausnina áfram og koma henni í framkvæmd.
„Við höfum unnið ötullega að fjármögnun hér heima fyrir og vorum svo lánsöm að komast inn í Drift, þar sem við hlutum ómetanlegan stuðning. Við lokuðum síðan fjármögnunarlotu í vor og það losaði um fjármagn erlendis frá sem gerir okkur kleift að komast af undirbúningsstigi og í framkvæmdir. Það er í raun stórmerkilegt að kóresk stjórnvöld séu til í að styðja við rafvæðingu íslensks strandveiðibáts, en það er afrakstur mikillar vinnu síðustu ár.“

Á mynd t.v. Kristján Þór Júlíusson stjórnarformaður Driftar EA, Hreinn Þór Hauksson leiðtogi frumkvöðla og fjárfestinga hjá Drift EA, Dr. Go frá Suður Kóreu, Kolbeinn Óttarsson Proppé framkvæmdastjóri og eigandi Grænafls, Sesselja I. Barðdal framkvæmdastýra Drift EA, og Freyr Steinar Gunnlaugsson eigandi Grænafls.
Tengdar greinar
Uppfært: 15. september 2026










