MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Götulokanir vegna 1. maí á Akureyri

Eftir Ingólfur Stefánsson·
mynd-bls-26_357-650×289
kaffid.is

Vegna kröfugöngu og hátíðarhalda 1. maí verður hluta Skipagötu og Kaupvangsstrætis lokað fyrir umferð á milli klukkan 13.45 og 14.15 á morgun, 1.maí. Í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og gera ráð fyrir tímabundnum truflunum á umferð á þessu svæði. Götulokun göngugötunnar sjálfrar hefst þann 1. maí og verður hún því lokuð fyrir umferð bíla á þessum tíma.

Kröfugangan hefst við Alþýðuhúsið, þar sem göngufólk safnast saman klukkan 13.45 og leggur af stað klukkan 14.00 undir leik Lúðrasveitar Akureyrar. Að göngu lokinni tekur við hátíðardagskrá á Ráðhústorgi.

Á dagskrá verða ávörp og skemmtiatriði, meðal annars frá fulltrúum stéttarfélaga og leikfélögm MA og VMA. Að lokinni dagskrá verður boðið upp á grillaðar pylsur og skátatívolí. Hér eru nánari upplýsingar.

Götulokanir vegna 1. maí á Akureyri

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026