MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Götulokanir á Akureyri um verslunarmannahelgina

Eftir María Hjelm·
gotulokanir-um-verslo-a-akureyri-2000×1418-1
Mynd: akureyri.is· kaffid.is

Fjölskylduhátíðin Ein með öllu fer fram á Akureyri um verslunarmannahelgina. Þá er einnig á dagskrá fjallahlaupið Súlur Vertical sem verður fjölmennara ár frá ári. Vegna viðburða í bænum verður eitthvað um götulokanir. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef akureyri.is í dag.

Nokkrum götum verður lokað tímabundið (sjá meðfylgjandi kort og mynd) og hámarkshraði um Glerárgötu næst Akureyrarvelli verður lækkaður í 30 km þegar mest er um að vera þar á sunnudeginum. Er þetta gert til að tryggja öryggi gesta. Bæjarbúar og gestir í bænum eru beðnir að sýna tillitsemi og taka þátt í að skapa góða stemningu um versló.

„Sýnum hlaupurum í Súlur Vertical sérstaka tillitssemi og að sjálfsögðu öllum öðrum sem vilja njóta alls þess sem Ein með öllu hefur upp á að bjóða,“ segir í tilkynningunni.

Vegna Súlna Vertical hlaupsins verður Brekkugata lokuð frá klukkan 11-18 laugardaginn 1. ágúst eða þar til síðustu keppendur koma í mark.

Til að létta á umferðarþunga einkabíla verður ferðum Strætisvagna Akureyrar fjölgað og leiðum breytt til að auðvelda fólki að komast að hátíðarsvæðinu og aftur til síns heima að skemmtun lokinni. Sjá hér.

Hér má sjá dagskrá hátíðarinnar Einnar með öllu og hér er vefsíða fjallahlaupsins.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026