Akureyrarvaka fer fram á föstudag og laugardag. Búist er við miklu fjölmenni í miðbænum sem leiðir óhjákvæmilega til þess að loka þarf nokkrum götum tímabundið.
Frá kl. 18 föstudaginn 24. ágúst verður Listagilið lokað vegna uppsetningar sviðsvagns sem verður neðst í götunni og lokast þar með einnig göngugatan. Sviðsvagninn verður fjarlægður aðfaranótt sunnudagsins 26. ágúst og opnast þessar leiðir kl. 10 um morguninn.
Sjá einnig: Margs konar viðburðir á Akureyrarvöku
Frá kl. 20-24 föstudaginn 24. ágúst verður Hafnarstræti lokað frá Austurbrú að Suðurbrú vegna draugahúss í Samkomuhúsinu.
Leiðir að Ráðhústorgi verða lokaðar frá kl. 11-19 laugardaginn 25. ágúst, þ.e. Skipagata að hluta, Strandgata að hluta og Túngatan að hluta.
Bílastæði eru meðal annars við:
- Menningarhúsið Hof
- Ráðhúsið
- Skipagötu
- Hofsbót
- Austurbrú
Almenningssalerni verða á eftirtöldum stöðum:
- Undir kirkjutröppunum
- Menningarhúsið Hof (aðgengi fyrir fatlaða)
- Bílastæði við Skipagötu (aðgengi fyrir fatlaða)
- Listasafnið á Akureyri (aðgengi fyrir fatlaða)
Vakin er athygli á því að samkvæmt 12. grein samþykktar Akureyrarbæjar um hundahald er óheimilt að fara með hunda á samkomur eins og Akureyrarvöku.
Umferð dróna er bönnuð nema með leyfi hátíðarhaldara og flugturns Akureyrarflugvallar.
Dagskrá Akureyrarvöku er að finna á www.akureyrarvaka.is.
Fréttatilkynning af vef Akureyrarbæjar.