Götuhreinsun hafin á Akureyri

Í tilkynningu frá Akureyrarbæ kemur fram að götuhreinsun í bænum sé nú í fullum gangi og mun halda áfram næstu daga. Íbúar eru beðnir um að sýna tillitssemi á meðan á hreinsun stendur. Sömuleiðis eru bæjarbúar beðnir um að færa bifreiðar sínar og önnur farartæki af almennum svæðum í götum og eru hvattir til að sópa og þrífa við hús sín áður en götur eru sópaðar. Tekið er fram að einungis eru þrifnar götur í eigu Akureyrarbæjar og ekki er farið inn fyrir lóðarmörk.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!