MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Götugangan á sunnudaginn

Eftir Ingólfur Stefánsson·
gotugangan-2000×1333-1
Mynd: Akureyri.is· kaffid.is

Næstkomandi sunnudag, 13. september, klukkan 13 verður Götugangan haldin á Akureyri í fjórða sinn. Genginn verður tæplega 5 kílómetra leið meðfram Pollinum og göngugarpar á öllum aldri eru velkomnir. Þátttaka er ókeypis.

„Gangan er hluti af Evrópsku samgönguvikunni og er frábært tækifæri til að hreyfa sig, njóta útsýnisins við Pollinn og eiga góða stund saman,“ segir í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Rásnúmer og tímataka verða í boði fyrir 12 ára og yngri og 60 ára og eldri. Gangan hefst við Hof þar sem bæjarstjóri, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, segir nokkur orð áður en lagt verður af stað. Unnar Vilhjálmsson leiðir upphitun og brautarverðir verða á leiðinni til að vísa veginn og hvetja göngufólk áfram.

Afhending rásnúmera fyrir 12 ára og yngri og 60 ára og eldri fer fram í Hofi frá klukkan 10 til 12 á sunnudaginn.

Nánari upplýsingar og skráning hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 10. september 2026