Götuganga Akureyrar haldin í fjórða sinn
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Í gær var Götuganga Akureyrar haldin í fjórða sinn. Um 40 manns gengu 4,7 km meðfram Pollinum í góðu veðri.
Héðinn Svarfdal bauð alla velkomna, Unnar Vilhjálmsson stjórnaði skemmtilegri upphitun og bæjarstóri Akureyrar, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, ræsti keppendur. Afar og ömmur voru hvött til að taka barnabörnin með sér í gönguna svo úr varð skemmtileg blanda af fjölskyldum og stökum þátttakendum á öllum aldri, frá þriggja ára til áttatíu ára.
- Karl Guðmundsson kom fyrstur gangandi í mark, hann var 38 mínútur og 33 sekúndur á leiðinni.
- Önnur úrslit má finna hér
Á vef UFA má finna ítarlegri umfjöllun um viðburðinn og fleiri myndir. Smelltu hér.
Tengdar greinar
Uppfært: 14. september 2026










