NTC

Götuganga Akureyrar haldin í annað sinnMynd/UFA

Götuganga Akureyrar haldin í annað sinn

Laugardaginn 12. október, kl. 13, verður Götuganga Akureyrar haldin í annað sinn. Frítt er í gönguna og gaman fyrir göngugarpa bæjarins að hittast og ganga saman tæplega 5 km leið meðfram Pollinum.

Gönguleið

Gengið verður í suðurátt frá Hofi og snúið við þegar leiðin er hálfnuð og gengið til baka. Brautarverðir verða á leiðinni til að leiðbeina þátttakendum og hvetja þá til dáða. Gönguleiðin er 4,7 km, hún liggur frá rásmarki, rétt sunnan við Hof, beygt til austurs við gatnamótin á móts við Leirunesti og nýi göngustígurinn genginn langleiðina að brúnni, þar er snúningspunktur og gengið er aftur til baka, sama leið í mark. Frekari upplýsingar og skráning er á vefsíðu UFA.

Mynd/UFA

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó