Vegna góðs veðurs á Akureyri hefur verið ákveðið að loka göngugötunni fyrir bílaumferð fyrr en gert var ráð fyrir. Götunni verður lokað fyrir bílaumferð frá kl. 13 í dag og síðan tekur við júlílokun sem er alla daga frá kl. 11-17. Í ágúst er göngugatan lokuð fimmtudaga, föstudaga og laugardaga frá kl. 11-17. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.
Vörumóttaka er ætluð utan þessa tíma og aðkoma fyrir ökutæki fatlaðs fólks að göngugötunni er að norðan, frá Brekkugötu.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Allir sem vilja nota göngugötuna til leikja eða skemmtilegra viðburða í sumar eru hvattir til að láta slag standa og hafa samband við Akureyrarstofu sem veitir nánari upplýsingar. Netfangið er akureyrarstofa@akureyri.is.










