MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Goðamót Þórs leggja Minningarsjóði Baldvins lið

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Gjöf_til_minningarsjóðs_BR-IMG_6180
kaffid.is

Goðamót Þórs hafa lagt Minningasjóði Baldvins Rúnarssonar lið með 300 þúsund króna framlagi. Upphæðin er sú sama og hefði kostað að kaupa þátttökupeninga fyrir Goðamótin 2019-2020. Þetta kemur fram á vef Þórs.

Þar segir að tilgangur Minningasjóðsins sé að styrkja  einstaklinga, hópa eða félög á sviði íþrótta- og mannúðarmála.

Það var Gestur Arason gjaldkeri knattspyrnudeildar Þórs sem afhenti fulltrúum sjóðsins peningana í dag en um helgina fer fram 64. Goðamót Þórs þar sem drengir í 6. Flokki eru í aðalhlutverkinu.

Á myndinni sem er tekin af vef Þórs eru talið frá vinstri: Hermann Helgi Rúnarsson bróðir Baldvins og Arnar Geir Halldórsson stjórnarmenn í sjóðnum, Gestur Arason gjaldkeri knattspyrnudeildar og Orri Sigurjónsson í sjóðsstjórn. 

Tengdar greinar

Uppfært: 24. apríl 2026