Fjölmenni safnaðist saman á Akureyri í dag til að taka þátt í kröfugöngu sem stéttarfélögin á Akureyri stóðu fyrir í tilefni af 1. maí, alþjóðlegum baráttudegi verkafólks.
Gengið var frá Alþýðuhúsinu, við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar, gegnum miðbæinn að Ráðhústorgi og svo niður í Menningarhúsið HOF, þar sem fram fór hátíðardagskrá í tilefni dagsins.
Kristín Konráðsdóttir, félagi í Sameyki, flutti ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna við Eyjafjörð og Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, flutti hátíðarræðu dagsins. Auk þess var boðið upp á skemmtiatriði. Bryndís Ásmundsdóttir stýrði dagskránni og söng nokkur vel valin lög og félagar í Leikfélagi Menntaskólans á Akureyri mættu á svæðið og tók tvö skemmtileg dans og söngatriði úr söngleiknum Footloose sem þau settu nýlega á svið. Að dagskrá lokinni var boðið upp á glæsilegt kaffihlaðaborð í Menningarhúsinu HOFI.
UMMÆLI