Góð þátttaka á Sólstöðuhátíð í Grímsey um helgina

Sólstöðuhátíðin var haldin í Grímsey um liðna helgi, þrátt fyrir frekar þungbúna spá rættist ágætlega úr veðrinu en miðnætursólin lét samt lítið fyrir sér fara. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu eyjunnar.

Vel var bókað með ferjunni Sæfara frá Dalvik auk þess sem nokkrir bátar fóru sérferðir til eyjarinnar í tilefni af hátíðinni.

Á laugardagskvöldið buðu Kvenfélagskonur upp á veglegt 16 rétta sjávarréttahlaðborð í félagsheimilinu Múla og þar á eftir var stiginn dans.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!