Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Menning

Gluggasýning: Í bleikum kjól og með hatt

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screenshot-2026-10-06-at-19.04.10
kaffid.is

Í tilefni af Bleikum október hafa systurnar Áslaug og Brynja Harðardætur Tveiten sett upp gluggasýninguna Í bleikum kjól og með hatt á vinnustofu þeirrar síðarnefndu.

Málefnið stendur þeim nærri enda greindist Brynja með brjóstakrabbamein árið 2021 og lauk meðferð ári síðar. Formlegri eftirfylgni lauk á þessu ári og voru það heilmikil tímamót fyrir Brynju sem er frísk í dag.

GLUGGINN virðist alsæll með sýninguna enda skreyttur bleikum kjólum, höttum og skóm. Hann virðist jafnvel taka dansspor og benda íbygginn á gifsbrjóst í gluggakistunni. Um er að ræða afsteypu af brjóstum Brynju sem tekin var áður en krabbameinið var skorið í burtu. Brynja segir kankvís “ það er ekki á hverjum degi sem ég er með brjóstin mín út í glugga.“

Að sögn Brynju er ósk þeirra systra að Glugginn veki athygli á árlegu árveknisátaki gegn krabbameinum hjá konum og minni fólk á að skoða brjóst sín reglulega. Eins vilja þær systur hvetja fólk til að nota leikinn sem bjargráð í amstri dagsins. „Það er svo heilandi að gleyma sér í leik, hvort sem hann er sjálfsprottinn eða útpældur – og gluggasýningar okkar systra eru gott dæmi um slíkt.“ segir Brynja.

„Vonandi sjáum við sem flest á föstudaginn 9. október kl. 16–20, en þá verður vinnustofan opin og tekur þátt í Dekurdögum hér á Akureyri. Auk gluggans verður hægt að kíkja á myndlist, leirmuni og fatahorn –og ekki síst ný píkublóm eftir mig, verkaseríu úr endurunnu handverki sem ég kalla Hjartadrottningar.“

Tengdar greinar

Uppfært: 6. október 2026