Píeta

Glænýtt myndband fyrir Litlu Hryllingsbúðina

Glænýtt myndband fyrir Litlu Hryllingsbúðina

Leikfélag Akureyrar hefur frumsýnt nýtt tónlistarmyndband við lagið „Snögglega Baldur“ úr söngleiknum Litla Hryllingsbúðin sem fer á fjalir Leikfélags Akureyrar í október.

Lagið er eitt af þekktari lögum þessa vinsæla söngleiks og er það Kristinn Óli (Króli) sem leikur blómasalann Baldur og Birta Sólveig Söring sem leikur blómarósina Auði. Önnur aðalhlutverk eru í höndum Ólafíar Hrannar Jónsdóttur og Arnþórs Þórsteinssonar. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson.

Myndbandið er skemmtilegt og líflegt og gefur tóninn fyrir viðburðaríku sýningartímabili hjá Menningarfélagi Akureyrar. Hægt er að tryggja sér miða á forsölutilboði hér og myndbandið má sjá í spilaranum hér að neðan.

UMMÆLI