Gæludýr.is

Gjörningahátíðin A! hefst á morgun

Gjörningahátíðin A! hefst á morgun

Gjörningahátíðin A! hefst núna á morgun 10. október og stendur fram á laugardag. Hátíðin er alþjóðleg og er haldin í tíunda sinn á Akureyri, er hún sú eina sinnar tegundar á Íslandi þar sem einungis er um gjörningalist að ræða.

Í ár eru um 20 listamenn sem taka þátt og er frítt inn á alla viðburði. Dagskrá hátíðarinnar má sjá hér.

Meðal viðburða er til dæmis vélrænn tæknigjörningur í Hamragili í Hofi sem Magnús Helgason mun framkvæma þann 12. október, klukkan 14.30. Gjörningurinn hefur verið í undirbúningi síðan 2018 og hefur að öllum líkindum ekki verið framkvæmdur áður.

Magnús Helgason lærði myndlist í AKI Hollandi og hefur frá 2001 starfað við ýmsa miðla myndlistar. Þetta er hans fyrsti gjörningur.

Dómnefnd valdi verk úr hópi fjölbreyttra listamanna og eru gjörningar af öllum toga á dagskránni. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum. 

Þátttakendur eru: Magnús Helgason, Hekla Björt Helgadóttir, Fríða Karlsdóttir, Dustin Scott Harvey, Ashima Prakesh og Éva Berki, Véný Skúladóttir, Christalena Hughmanick, Clare Almere, Henrik Koppen, Kristján Helgason, Guðmundur Steinn Gunnarsson og Birgir Sigurðsson, Snæfríður Sól Gunnarsdóttir, Kraftverk (Anna Kolfinna Kuran, Elín Signý Weywadt Ragnarsdóttir, Elísabet Birta Sveinsdóttir, Gígja Jónsdóttir og Guðrún Selma Sigurjónsdóttir), Heather Sincavage og Sarah Hammeken.

Gjörningahátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, Vídeólistahátíðarinnar Heim, Einkasafnsins, Gilfélagsins, Listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri og Menntaskólans á Akureyri.

UMMÆLI

Sambíó