MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Gilfélagið og Myndlistarfélagið lýsa yfir áhyggjum vegna Kaupvangsstrætis 16

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Gilfélagið og Myndlistarfélagið lýsa yfir áhyggjum vegna Kaupvangsstrætis 16

Kaupvangsstræti 16 hefur hýst Myndlistaskólann á Akureyri undanfarin ár en verður í framtíðinni notað undir gististarfsemi.

Stjórn Gilfélagsins og Myndlistarfélagsins á Akureyri hafa sent frá sér sameiginlega ályktun sem samþykkt var á fundi félaganna fyrir skömmu þar sem til umræðu var óánægja félaganna með breytingar á starfsemi húsnæðisins.

Í ályktuninni segir að félögin telji breytingarnar ekki vera í samræmi við markmið í nýju Aðalskipulagi Akureyrar þar sem segir að lögð verði áhersla á menningar- og listatengda starfsemi í Grófargili eða Listagili.

Ályktunina má sjá í heild sinni hér að neðan:

Stjórnir Gilfélagsins og Myndlistarfélagsins lýsa yfir áhyggjum af því að hluti húsnæðisins Kaupvangsstræti 16, sem hýst hefur Myndlistaskólann á Akureyri, verði nú lagður undir gististarfsemi. Það teljum við ekki vera í samræmi við markmið ný samþykkts Aðalskipulags Akureyrar þar sem segir: „Í Grófargili (Listagili) verður lögð áhersla á menningar- og listatengda starfsemi“.

Upphaf listatengdrar starfsemi á svæðinu má rekja til framsýnna ákvarðana í kringum 1990 og á síðustu misserum hefur verið stutt vel við þá stefnu með uppbyggingu og endurbótum á Listasafninu. Það er von okkar að þær framkvæmdir verði til enn frekari eflingar í listalífi bæjarins en hafa þarf í huga að sjálf listsköpunin er undirstaða safna og sýninga. Það er von okkar að listnám á svæðinu þróist og eflist enda mun sköpun, menning og listir skipa vaxandi sess í samfélaginu eftir því sem lengra inn í fjórðu iðnbyltinguna líður. Við viljum því skora á bæjaryfirvöld að fylgja fast eftir fyrrnefndum markmiðum, standa vörð um menningar- og listatengda starfsemi og gæta þannig hagsmuna samfélagsins til framtíðar.

Stjórn Gilfélagsins
Stjórn Myndlistarfélagsins

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026