Gengið af göflunum í Eyjafirði í dag

Í morgun lögðu þeir Hörður Halldórsson og Arnór Bliki Hallmundsson af stað í ferð um Eyjafjörð til þess að vekja athygli á ýmsym góðgerðarverkefnum á svæðinu. Þeir lögðu af stað ásamt hlaupahóp klukkan átta í morgun en fólki er velkomið að slást í för við hópinn þegar hentar.
Á Facebook-síðunni Göngum af göflunum verður haldið úti litlu myndbandsbloggi í dag. Þar getur fólk skrifað athugasemdir og vakið athygli á góðgerðarverkefnum.
„Þú þarft alls ekki að hlaupa alla 60 kílómetrana til að vera með. Komdu bara og taktu 1-20 kílómetra með okkur, spjallaðu við okkur á leiðinni og kynntu verkefnið þitt. Ertu að safna áheitum fyrir Reykjavíkurmaraþonið? Endilega deildu söfnuninni hér líka. Þegar við náum áhorfi og dreifingu á laugardaginn getum við hjálpast að við að vekja athygli á sem flestum góðum málefnum. Við reiknum með að verkefnið taki 8-10 klukkustundir þannig að græjaðu þig og komdu bara þegar þér hentar… þetta er smá popup event og nær algjörlega óundirbúið þetta reddast viðburður. Við erum að gera þetta til að byggja upp jákvætt samtal, samkennd og kærleika á veraldarvefnum,“ segir um viðburðinn í tilkynningu.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










