Amtsbókasafnið á Akureyri hefur komið fyrir kössum með gefins bókum á nokkrum stöðum í bænum. Þar má finna bækur sem annars hefðu farið í endurvinnslu, svo með þessu er verið að framlengja líf þeirra.
Íbúar bæjarins eru hvattir til að kíkja í kassa og taka sér bók. Fólk getur einnig notað kassana til þess að skilja eftir bækur sem það er hætt að nota og vill losa sig við.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Nú eru komnir nýir kassar í Sunnuhlíð, Glerársundlaug, Axelsbakarí, Backpackers og Berlín. Að auki eru bækur frá safninu í Sundlaug Akureyrar og barnabækur í Boganum og KA-heimilinu.










