Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fólk

„Geðveikt að vera tónlistarmaður í fullri vinnu“

Eftir Ingólfur Stefánsson·
saint-pete
kaffid.is

Rapparinn og Akureyringurinn Pétur Már Guðmundsson, Saint Pete, heldur sína fyrstu stórtónleika á Hlíðarenda í Reykjavík 9. október næstkomandi. Um er að ræða útgáfutónleika nýjustu plötu hans, TVÍBRRRI, sem handan er við hornið.

Pétur segir í samtali við Kaffið.is að tónleikagestir megi búast við alvöru sýningu. Hann stefnir á að gefa út plötuna fyrir tónleikana svo fólk hafi nægan tíma til að læra lögin vel.

„Þetta verður alvöru sýning, við ætlum að bjóða upp á íslenskt rapp á hæsta stigi og bjóða upp á alvöru veislu fyrir gesti. Það sama verður upp á teningnum á plötunni, íslenskt rapp á hæsta gæðastigi og alvöru veisla.“

Pétur segir að síðustu vikur hafi farið í mikla undirbúningsvinnu og að hann og Hreinn, samstarfsfélagi hans, hafi verið í stúdíóinu langt fram á nótt kvöld eftir kvöld.

„Núna erum við í „heavy-grindi“ fram að tónleikum, allir dagar eru bara vinna, vinna, vinna. Það er bara hausinn niður núna og svo eftir þetta mun ég fá tíma til að njóta lífsins með fjölskyldunni og spila mjög mikið af tölvuleikjum.“

Pétur skaust upp á stjörnuhimininn fyrir um tveimur árum síðan þegar hann gaf út plötuna Græni Pakkinn, síðan þá hefur hann gefið út lög með mörgum af vinsælustu tónlistarmönnum landsins og komið fram á tónleikum og hátíðum um allt land. Hann segir að lífið sé þó enn mjög svipað og áður.

„Fyrir utan meiri pening og meira frelsi þá hefur ekkert breyst. Það er bara geðveikt að vera tónlistarmaður í fullri vinnu, algjör snilld. Alveg geggjað.“

„Rappsenan á Íslandi er frábær og ég tek innblástur frá öllum. Fyrirmyndin mín í tónlistinni er íslenska rappsenan. Svo hefur Birgitta Haukdal alltaf verið í uppáhaldi, og Lil Wayne. Ég er svo heppinn að hafa fengið að vinna með flestum af mínum fyrirmyndum, fyrir utan Birgittu og Lil Wayne en ég hef fulla trú á því að það eigi eftir að gerast,“ segir Pétur.

„Stærsta fyrirmyndin mín í tónlist er samt alltaf Hreinn Orri, og ég hef fengið að vinna mest með honum. Það er frábært að vinna með honum og við vinnum mjög svipað og nálgumst hlutina eins. Ég er mjög þakklátur fyrir það að hafa fengið að vinna með fyrirmyndum mínum og eiga gott samband við alla. Það er frábært að sjá hvernig fólk nálgast listina sína og fá að læra af því.“

Pétur og Hreinn hittust á Akureyri fyrir um sex árum og hafa gert tónlist saman síðan þá. Pétur segir að Saint Pete sé í rauninni hljómsveit þar sem að þeir geri allt saman. Hann segir að þegar hann hafi verið að stíga sín fyrstu skref sem tónlistarmaður á Akureyri hafi vinur hans bent honum á Hrein og að síðan þá hafi þeir verið óaðskiljanlegir.

Platan TVÍBRRRI er tilvísun í það að þeir séu báðir í stjörnumerkinu tvíburi. Þeir séu smá tvíburar og vinni eins og einn heili í tónlistarsköpun Saint Pete.

Pétur býr nú í Reykjavík ásamt kærustu sinni og stjúpsyni. Hann segir að það sé á dagskrá að halda stórtónleika á Akureyri í framtíðinni og hann segist spenntur fyrir því að láta það verða að veruleika þó svo að öll athygli þessa dagana sé á Tónleikum aldarinnar og plötuútgáfu.

„Uppeldið á Akureyri hefur mótað mig sem listamann. Allir sem búa á Akureyri þekkja það að vera með þennan Akureyraranda í sér sem krefst þess að komast út og hjá mér gerði hann það í þessu listformi. Það er ekkert sem ég elska meira en Akureyri og ég vona að það komi skýrt fram í tónlistinni minni. Áfram KA,“ segir Pétur að lokum.

Tengdar greinar

Uppfært: 29. september 2026