Geðlestin heimsækir Dalvík á mánudaginn – Samtal um geðrækt og Emmsjé gauti og Þormóður taka lagið

Geðlestin heimsækir Dalvík á mánudaginn – Samtal um geðrækt og Emmsjé gauti og Þormóður taka lagið

Í næstu viku munu landssamtökin Geðhjálp ferðast um landið sem og bjóða upp á samtal um geðrækt og geðheilsu í bland við tónlist og gleði. Verkefnið heitir Geðlestin og mun koma við á þremur stöðum á Norðurlandi.

Næstkomandi mánudag, þann 23. september, mun lestin heimsækja Sauðárkrók í hádeginu og standa svo fyrir kvölddagskrá klukkan 20:00 í Menningrhúsinu Bergi á Dalvík, þar sem Emmsjé Gauti og Þormóður munu stíga á stokk. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. Þriðjudaginn 24. september heimsækir lestin svo Húsavík í hádeginu.

Frekari upplýsingar um Geðlestina og aðra áfangastaði hennar víðsvegar um land má finna á heimasíðu Geðhjálpar með því að smella hér. Í fréttatilkyningu frá Geðhjálp segir eftirfarandi um verkefnið:

Í tilefni af forvarnarátakinu Gulum september ætla landssamtökin Geðhjálp að ferðast um landið og bjóða upp á samtal um geðrækt og geðheilsu í bland við tónlist og gleði. Geðlestin er heiti verkefnisins en
það hefur áður farið um landið en þá var áherslan á börn og ungmenni en núna er ætlunin að hitta sveitarstjórnir, félags- og skólamálayfirvöld annars vegar og almenning hins vegar. Við hittum sveitarstjórnir og félags- og skólayfirvöld í hádeginu en almenning á kvöldfundum.

Á hádegisfundinum kynnir Geðhjálp ýmsa geðheilsuvísa (mælikvarða), fjallar um mikilvægi geðræktar, hvernig draga megi úr fordómum og mögulegar leiðir til þess að efla forvarnir. Markmiðið er einnig að eiga samtal við heimafólk og hvað helst brennur á því í tengslum við geðrækt og geðheilbrigði.

Kvölddagskrá er aðeins öðruvísi sett upp. Hún hefst á stuttri kynningu á Geðhjálp og starfi samtakanna. Eftir það verður farið yfir mikilvægi reglulegrar geðræktar út lífið og ýmsar leiðir þar nefndar. Þá mun einstaklingur segja frá sinni reynslu af geðrænum áskorunum og hvernig bata var náð og hvaða verkfæri hafa reynst best. Eftir reynslusöguna verða umræður/samtal. Í lokin stíga þeir félagar Emmsjé Gauti og Þormóður á svið og leika nokkur lög til að árétta að geðrækt er líka gleði og skemmtun. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. Gert er ráð fyrir að kvöldfundurinn standi í 80 til 90 mínútur.

UMMÆLI

Sambíó