Menningarfélag Akureyrar hefur náð samningum við matreiðslumanninn Sölva Antonsson sem mun verða nýr rekstraraðili veitinga í Menningarhúsinu Hofi.
Sölvi, sem rekur Ghost Kitchen ehf, Ghost Mountain og Baccalár Bar, mun reka veitingastaðinn Garún / Bistro Bar í Hofi og mun auk þess sjá um veitingar á viðburðum og fundum í húsinu.
Síðast var veitingarekstur í Hofi í höndum Barr Kaffihús en staðurinn lokaði í janúar og í kjölfarið auglýsti Menningarfélagið eftir nýjum rekstaraðila.
„Við ætlum að fara í þjóðlegu áttina með mat, drykk, kökur og kaffi og bjóða upp á smurbrauðstertur og jafnvel heita brauðrétti. Á hádegishlaðborðinu verður einfaldur og bragðgóður matur á sanngjörnu verði á boðstólunum,“ segir Sölvi.
Stefnt er að því að Garún / Bistró Bar opni í Hofi byrjun apríl.