Gáfu málmiðnbraut VMA standborvél

Í gær fékk Málmiðnbraut Verkmenntaskólans á Akureyri formlega afhenda standborvél frá bakhjörlum og velunnurum brautarinnar í bænum. Í tilkynningu á vef skólans segir að það hafi verið komin tími á endurnýjun á tækinu sem er mikilvægt í vélasal brautarinnar.
„Þetta er brautinni algjörlega ómetanlegt því það er nú svo að tækjabúnaðurinn sem þarf til kennslu í grunndeild málmiðnaðar og í málmsmíðagreinum gengur úr sér með árunum og hann þarf því að endurnýja.“
Félag málmiðnaðarmanna Akureyri – og þrjú fyrirtæki, Slippurinn Akureyri, Sindri og Kælismiðjan Frost stóðu að gjöfinni.
„Til fjölda ára hefur Félag málmiðnaðarmanna og þessi fyrirtæki sýnt stuðning sinn í verki á ýmsan hátt. Fyrir þessa góðu gjöf og allt sem gefendur hafa lagt af mörkum í þágu VMA í gegnum tíðina vill skólinn þakka af heilum hug,“ segir á vef skólans.
Af hálfu VMA veittu gjöfinni viðtöku Hörður Óskarsson brautarstjóri málmiðnbrautar og Unnur Ása Atladóttir, sviðsstjóri iðn- og starfsnáms í VMA.
Tengdar greinar
Uppfært: 30. september 2026





