Gáfu byggingadeild VMA þakdúka

Fyrirtækið Alfa Byggingalausnir ehf. hafa fært byggingadeild Verkmenntaskólans á Akureyri nokkrar gerðir af þakdúkum sem fyrirtækið selur. Þakdúkana mun byggingadeild nota í hin ýmsu verkefni nemenda og í húsin sem nemendur á öðru ári í byggingadeild byggja. Þetta kemur fram á vef VMA í dag.
Helgi Valur Harðarson, brautarstjóri byggingadeildar, segir á vef VMA að þessi gjöf Alfa byggingalausna muni nýtast mjög vel.
„Þetta skiptir okkur á byggingadeildinni miklu mál. Það er okkur mikilvægt að eiga samtal við fólkið í faginu, að fá að heyra af nýjungum og þróun í mannvirkjagerð. Og ekki er verra þegar menn taka sig til og skaffa okkur efni til að kenna nemendum og hreinlega styðja við námið.“
„Öndunardúkar eru sífellt meira notaðir við smíði húsa í dag, þeir hjálpa til við að halda byggingarefninu þurru en eiga samt að anda út og ættu þar af leiðandi að auka líkur á betri endingu og jafnframt að minnka líkur á myglu og rakavandamálum. Meðvitund um aukna loftun og að byggingarefnin þurfi að anda er alltaf að aukast og það er vonandi að við getum séð við myglunni í nýjum byggingum, til mikils er að vinna í þeim efnum,“ segir Helgi Valur á VMA.is þar sem lesa má meira um gjöfina.
Tengdar greinar
Uppfært: 15. október 2026





