Gaber Dobrovoljc, 29 ára gamall miðvörður frá Slóveníu, hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild KA og mun spila með liðinu út núverandi tímabil í Bestu deild karla. Gaber kemur til ka frá NK Domžale í Slóveníu.
„Það var ljóst að KA liðið þurfti á nýjum leikmanni að halda eftir að lánssamningur við Oleksiy Bykov rann út og erum við afar spennt fyrir því að fá Gaber til liðs við okkur,“ segir á vef KA.
Gaber kemur úr unglingastarfi NK Domžale og hefur leikið allan sinn feril með liðinu fyrir utan eitt ár með Fatih Karagümrük í Tyrklandi. Með Domžale varð Gaber slóvenskur bikarmeistari árið 2017 og lék auk þess 25 evrópuleiki með liðinu. Á sínum tíma lék Gaber 27 leiki fyrir yngrilandslið Slóveníu sem og tvo leiki fyrir B-landslið.
„Við bjóðum Gaber innilega velkominn í KA og hlökkum til að sjá hann í gulu og bláu treyjunni. Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur í sumar en KA liðið er í 3. sæti Bestu deildarinnar með 27 stig eftir 14 leiki og er þar að auki komið í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins þar sem strákarnir taka á móti Ægi þann 10. ágúst næstkomandi,“ segir á vef KA.
UMMÆLI