Framsókn

G. Ármann opnar sýningu í Hofi

G. Ármann að mála við Þelamörk. Mynd: Ragnar Hólm.

Guðmundur Ármann Sigurjónsson opnar myndlistarsýninguna „Hugmyndir“ í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri laugardaginn 28. apríl kl. 14.

Hugmyndirnar eru sóttar í umhverfið við Eyjafjörð og verkin eru öll máluð á þessu ári og því síðasta. Olíumálverkin á sýningunni eru unnin á vinnustofunni og þá eru minni vatnslitamyndir gjarnan uppspretta litavals, forms og hugmynda. Listmálarinn leikur sér að fljótandi eiginleikum olíulitanna og bregður á leik með formspil náttúrunnar.

Vatnslitamyndirnar eru málaðar úti undir berum himni, oftast á góðviðrisdögum en stundum á mörkum þess mögulega fyrir vatnsliti. Viðvangsefnið er náttúran eins og hún birtist í mismunandi ljósi dagsins. Leitast er við að færa á vatnslitaörkina myndefnið eins og það birtist sjónum áhorfandans. Þannig verða myndirnar jafn náttúrutrúverðugar og efniviðurinn, og hið eina sem setur þeim hugsanlegar skorður er færni þess sem heldur á penslinum.

Að sitja úti undir berum himni og skoða umhverfið með öllum skilningarvitunum er áskorun sem ekki verður notið með öðrum hætti. Meðvitundin um verkefnið að mála mynd skerpir athyglina og skynjunina til fullnustu og svo að töfrum er líkast. Að sjá myndina framkallast skref fyrir skref á pappírsörkina er augnabliks fögnuður, sérstaklega þegar vel tekst til.

„Myndlistin býr yfir samræmi sem er hliðstætt náttúrunni,“ á Cézanne að hafa sagt við kollega sinn þegar hann var að útskýra hvað hann hafði verið að fást við þegar hann leyfði sér að hnika réttri fjarvídd og myndefnið var einfaldað. Í þeim anda eru málverkin unnin og jafnvel gengið enn lengra í  að brjóta upp form náttúrunnar, þar til myndin verður aðeins hugmynd af því sem var málað. Töfrar náttúrusýnar felast ekki síður í að mála á vinnustofunni og finnast mynd sem glímt er við lokið þegar hún ber í sér minni sumarsins.

Við opnun sýningarinnar flytur Guðlaugur Viktorsson tónlist.
Sýningin verður opin í Hofi frá 28. apríl til 17. júní.

Guðmundur Ármann að mála Svalbarðsströnd. Mynd: Árni Ólafsson.

VG

UMMÆLI