Fyrstu upphitunartónleikar Mannfólkið breytist í slím 2026 fara fram á Leyni á páskadag, 5. apríl!
Hefð hefur skapast fyrir röð upphitunartónleika í aðdraganda menningarhátíðarinnar Mannfólkið breytist í slím til að vekja athygli á verkefninu og koma hreyfingu á tónlistarsenu Akureyrar og þá sérstaklega það mengi sem syndir fjarri meginstraumum. Það er listakollektífið og útgáfufélagið MBS á Akureyri sem stendur að Mannfólkið breytist í slím en hátíðin hefur verið haldin allt frá árinu 2018 með sérstaka áherslu á listafólk úr nærumhverfinu þar sem frumleiki og fjölbreytni atriða hefur orðið aðalsmerki verkefnisins. Á fyrstu upphitunartónleikum Mannfólkið breytist í slím 2026 á Leyni á páskadag kemur fram úrvals hávaðarokk frá austurströnd bandaríkjanna ásamt þungavigtarfólki úr norðlensku jaðarsenunni.
Cushing er póstpönksprengja frá ströndum Maine fylkis í bandaríkjum Norður-Ameríku. Sveitin var stofnuð árið 2014 og hefur verið iðin við tónleikahald vestanhafs síðan þá. Framkomu þríeykisins hefur verið lýst sem tundurdufli, hlöðnum grimmilegri sækadelíu sem nýtir bjögun og hávaða til æðisgenginnar tónsköpunar. Cushing hljómar ennfremur eins og Devo á slæmu sýrutrippi ofan á rútu þar sem Lemmy heitinn heldur um stýrið og búið er að losa um bremsuklossana.
Á geigsgötum var upphaflega sólóverkefni Inga Jóhanns Friðjónssonar sem þróaðist í fimm manna hljómsveit sem starfrækt var á árunum 2013-2015. Meðlimir hljómsveitarinnar höfðu fjölbreyttan tónlistarbakgrunn; allt frá dómsdagsrokki, svartmálmi og hryllingspönki til síðrokks og dimmbylgju. Verkefnið er í eðli sínu tilraunakennt þar sem ægir saman ólíkum stílum og stefnum, sem bera þó yfirleitt með sér ákveðið yfirbragð drunga, óvissu, togstreitu og tómhyggju. Árið 2023 kom sveitin saman aftur með nokkrum mannabreytingum og hefur hún troðið upp við verðug tilefni.
Lynda Mandolyn er tónlistarkona sem þekktust er fyrir störf sín í kvennahljómsveitum á austurströnd Bandaríkjanna, þar á meðal bílskúrsrokkgoðsögnunum Tiger Bomb, popppönkhljómsveitinni Fabulous Disaster, og hinu áhrifamikla þríeyki Inside Out frá Detroit. Á ferli sínum hefur Lynda unnið með hinum margrómaða John Peel auk þess að vera vígð inn í Detroit Music Hall of Fame. Sólóefni Lyndu einkennist af ómstríðum og íburðarmiklum söng sem blandast smekklega við poppaða frasa og melódíur. Nú undirbýr hún upptökur á fyrstu sólóplötu sinni í fullri lengd. Lynda Mandolyn hefur farið í fjölmörg tónleikaferðalög í Evrópu og hlakkar til frumraunar sinnar á Íslandi.
Viljar Dreki hefur verið iðinn við takt- og tónsmíðar undanfarin ár auk þess að hafa skapað sér orðspor fyrir kröftuga sviðsframkomu. Frásagnarstíll hans er í senn drungafullur, óttalaus og spaugilegur. Rapparinn rekur smiðshöggið á fyrstu upphitunartónleika Mannfólkið breytist í slím 2026 og sér til þess öll fari dansandi út af Leyni á páskadag.
Röð atriða á tónleikunum er:
22:00 Lynda Mandolyn
22:30 Á geigsgötum
23:15 Cushing
00:15 Viljar Dreki
Gestum er frjálst að ráða miðaverði en mælt er með 2.500 ISK. Greitt er við hurð.
Hlekkur á viðburð:
Á geigsgötum – Dansfífl:
Viljar Dreki – Kýklópur:
Cushing – In the Clutches Of…:
Lynda Mandolyn – Gimmie Gimmie Halloween:
Heimasíða MBS:
MBS á samfélagsmiðlum:
Aðalviðburður Mannfólkið breytist í slím 2026:










