Um helgina fór fram hin árlega afhending hjálma til 1. bekkinga í grunnskólum Akureyrar. Kiwanis og Eimskip standa fyrir verkefninu sem hefur verið virkt frá því árið 1991.
Alls eru gefnir um 270 hjálmar á Akureyri og alls um 310 á öllu Eyjafjarðarsvæðinu.
„Öryggis- og forvarnarmál eru okkur afar mikilvæg og því stendur verkefnið okkur nærri, þar sem verkefninu er ætlað að stuðla að umferðaröryggi yngstu hjólreiðamanna landsins,“ segir í tilkynningu.