KA/Þór vann sannfærandi sigur á ríkjandi deildar- og bikarmeisturum Fram í Meistarakeppni HSÍ í Safamýri í gær.
Leiknum lauk með 30-23 sigri KA/Þór sem voru 17-10 yfir í hálfleik. Martha Hermannsdóttir skoraði sjö mörk fyrir KA/Þór í leiknum.
„Liðið er fullt sjálfstrausts og það er alveg ljóst að þessi sigur mun bara styrkja okkur. Við komum af fullum krafti inn í Olísdeildina þegar hún hefst undir næstu helgi. Það eru ekki mörg lið sem vinna Fram í Safamýri með sjö mörkum,“ sagði Martha í viðtali við handbolti.is eftir leikinn.
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin, hefst 11. september. KA/Þór fer þá í heimsókn til Vestmannaeyja og mætir ÍBV.
UMMÆLI