MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Fyrsti Þriðjudagsfyrirlestur vetrarins

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Fyrsti Þriðjudagsfyrirlestur vetrarins

Þriðjudaginn 2. október kl. 17 heldur Þórunn Soffía Þórðardóttir, listfræðingur, fyrsta Þriðjudagsfyrirlestur vetrarins í Listasafninu, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Fagmennska og ígrundun safnakennara á listasöfnum – lokaverkefni í menntunarfræðum við Háskólann á Akureyri.

Þar fjallar hún um meistaraverkefni sitt í menntunarfræðum þar sem var skoðað hvernig safnakennarar á listasöfnum hugsa um sig sem fagmenn og fagstétt. Verkefnið var í formi viðtalsrannsóknar þar sem var rætt við fjóra safnakennara og leitast var við að varpa ljósi á persónulega sýn þeirra á störfin og hlutverk inni á listasöfnunum. Aðgangur er ókeypis.

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026