Fyrsti þriðjudagsfyrirlestur ársins í ListasafninuMynd/listak.is

Fyrsti þriðjudagsfyrirlestur ársins í Listasafninu

Þriðjudaginn 4. febrúar kl. 17-17.40 heldur grafíski hönnuðurinn Anton Darri Pálmarsson fyrsta Þriðjudagsfyrirlestur ársins undir yfirskriftinni Grafísk hönnun: Að skapa tækifæri og koma sér á framfæri. Aðgangur er ókeypis. Þetta kemur fram á vef Listasafnsins, þar segir einnig:

Í fyrirlestrinum mun Anton Darri ræða um námsferilinn og hvernig hann fékk tækifæri til að vinna fyrir IceGuys, Aron Can, Emmsjé Gauta, Herra Hnetusmjör og fleiri þekkta aðila. Hann mun gefa innsýn í þau verkefni og hvernig það er að starfa sem hönnuður, bæði á auglýsingastofu og sem sjálfstætt starfandi verktaki.

Anton Darri útskrifaðist af listnámsbraut VMA og lærði grafíska hönnun í Myndlistaskólanum á Akureyri. Hann útskrifaðist með meistaragráðu í grafískri hönnun frá IED Firenze í Flórens á Ítalíu af brautinni Graphic Design: With Focus on New Media og hefur síðan unnið bæði á stofum og sem verktaki í skapandi greinum.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Myndlistafélagsins og Gilfélagsins. Aðrir fyrirlesarar vetrarins eru Kate Hiena, myndlistarkona, Þórgunnur Þórsdóttir, listakona, Bergur Þór Ingólfsson, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, Angelika Haak, myndlistarkona, Brynja Baldursdóttir, myndlistarkona, auk fulltrúa Myndlistarfélagsins.

Sambíó
Sambíó