MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Fyrsti samlestur á Chicago

Eftir Ingólfur Stefánsson·
09.11.2022 Samkomuhúsið – MAK – Leiklestur-8028
kaffid.is

Fyrsti samlestur á söngleiknum Chicago fór fram í Samkomuhúsinu í vikunni. „Þetta var æðislegt, ótrúlega skemmtilegt og fyndið og það er valinn maður í hverju rúmi,“ segir Marta Nordal leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar og leikstjóri söngleiksins.

Leikfélag Akureyrar frumsýnir Chicago í janúar 2023. Með helstu hlutverkin fara Jóhanna Guðrún, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Björgvin Franz Gíslason, Margrét Eir, Bjartmar Þórðarson og Arnþór Þórsteinsson. Með önnur hlutverk fara Ahd Tamimi, Jónína Björt Gunnarsdóttir, Elma Rún Kristinsdóttir, Kata Vignisdóttir, Anita Þorsteinsdóttir og Molly Carol Birna Mitchell.

Leikstjóri er, eins og áður segir, Marta Nordal. Um danshreyfingar sér Lee Proud, tónlistarstjóri er Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og um leikmynd sér Eva Signý Berger.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026