MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Fyrsti bæjarstjórnarfundur kjörtímabilsins

Eftir Ingólfur Stefánsson·
1654268326_1631632185_radhusid-bjarki-brynjolfs-06-minnkud
kaffid.is

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar í fyrsta sinn á þessu kjörtímabili þriðjudaginn 7. júní kl. 16. Fundurinn verður haldinn í fundarsal á 1. hæð í Ráðhúsinu, Geislagötu 9, og er öllum opinn.

Á dagskránni eru fyrst og fremst hefðbundin fundarstörf á fyrsta bæjarstjórnarfundi, einkum kosningar í fastanefndir og aðrar nefndir sveitarfélagsins. 

Sjá má dagskrá fundarins í heild sinni á vef Akureyrarbæjar. Fundurinn verður tekinn upp og gerður aðgengilegur á heimasíðu bæjarins að honum loknum. Hér má finna upptökur frá bæjarstjórnarfundum. 

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026