MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Fyrsta skóflustunga að nýjum stúdentagörðum við HA

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
unak-frett-nyir-studentagardar-2.09.2026-1
Ljósmynd: HA· kaffid.is

Fyrsta skóflustunga að nýjum stúdentagörðum við Háskólann á Akureyri var tekin í dag, að Norðurslóð 3, 5 og 7. Garðarnir rísa á háskólasvæðinu og munu hýsa samtals 62 íbúðir. Við háskólann munu rísa þrjú fjölbýlishús á fjórum til fimm hæðum. Þau munu rúma 126 íbúðir og einstaklingsherbergi fyrir allt að 170 íbúa. Stúdentagarðarnir munu bera nöfnin Sólvellir, Þingvellir og Akurvellir.

„Í dag fögnum við öll mikilvægu framfaraskrefi fyrir Akureyri og Háskólann á Akureyri. Með nýjum stúdentagörðum sem hér munu rísa skapast betri skilyrði fyrir námsfólk til að búa og mennta sig. Sem bæjarstjóri, fyrrum stúdent við Háskólann á Akureyri og íbúi á stúdentagörðunum er það alveg skýrt í mínum huga að þetta er sannarlega fjárfesting í framtíðinni og áframhaldandi þróun Akureyrar sem háskólabæjar,“ sagði Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri Akureyrarbæjar á vef háskólans.

Skóflustunguna tóku Berglind Ósk, Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, Aðalbjörn Jóhannsson, formaður Stúdentafélags Háskólans á Akureyri (SHA), og Böðvar Ingi Guðjónsson, nýnemi í Sálfræðideild.

Félagsstofnun stúdenta á Akureyri (FÉSTA) stendur að framkvæmdinni og í dag á stofnunin 164 búsetueiningar, þar af 74 þriggja herbergja íbúðir. Í nýju byggingunum þremur munu verða 40 tveggja herbergja íbúðir, 20 stúdíóíbúðir og 64 einstaklingsherbergi með sérbaðherbergi. Alls er um 124 nýjar búsetueiningar að ræða og framboð smærri búsetueininga mun rúmlega tvöfaldast. Nýju stúdentagarðarnir munu því auka verulega möguleika stúdenta á að fá húsnæði sem hentar þörfum þeirra.

FÉSTA samdi við K16 ehf. um byggingu stúdentagarðanna í kjölfar hugmyndasamkeppni um hönnun þeirra. Alls bárust ellefu tillögur í keppnina og hlaut tillaga Nordic Office of Architecture fyrstu verðlaun.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026