MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Fyrsta íslenska kennslubókin í réttarsálfræði

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
1000035396
Ljósmynd: MTR· kaffid.is

Nýverið kom út bókin Réttarsálfræði eftir Guðbjörn Hólm Veigarsson, sálfræðikennara við Menntaskólann á Tröllaskaga. Þetta er fyrsta kennslubókina um þessa undirgrein sálfræðinnar sem gefin er út á íslensku. Guðbjörn er með BA-gráðu í sálfræði og MEd-gráðu í menntunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri og fann fyrir skorti á íslensku námsefni þegar hann hannaði nýjan áfanga í faginu við MTR. Guðbjörn sótti því um styrk úr Þróunarsjóði námsgagna hjá Rannís til að bæta úr því og skrifa bókina.

Verkið var um tvö ár í vinnslu, er um 270 blaðsíður og nýtist jafnt til kennslu á framhaldsskólastigi sem og áhugafólki um efnið. Í bókinni er rannsóknum og efni úr erlendum fræðibókum miðlað á aðgengilegan hátt og það dregið fram með fjölmörgum dæmum sem varpa ljósi á viðfangsefnið. Að sögn höfundar er markmið útgáfunnar að efla þekkingu, áhuga og gagnrýna hugsun um réttarsálfræði.

Nánar á vef MTR.

Tengdar greinar

Uppfært: 20. september 2026